|
...var ég fyrir austan í hinum og þessum erindagjörðum...
ég byrjaði á að æfa og syngja á tónleikum í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði á miðvikudaginn... ásamt mér voru Halldóra Malin mín og Björt Smjört sem komu fram og undirleikarar okkar voru snillingarnir Börkur og Daði.. ég réði þá til æviloka þannig að vonandi sjáið þið þá einhvern tímann... Nokkrar myndir af þessu... ![]() ég að æfa mig í bláu kirkjunni... ![]() Börkur ýkt hress að bíða eftir matnum sem Óli gerði fyrir okkur... sá matur er einn sá besti sem ég hef fengið... ![]() ég og Daði ógó södd... jei! ![]() Við tutlur fyrir tónleikana.. við erum nú nokkuð fallegar... Síðan eftir frábæra tónleika og smá ömmu og mömmumat á fimmtudeginum brunuðum við Ingimar (bíllinn hennar mömmu) til Bjargar á Neskaupsstað.... Því á föstudeginum voru krúttin þau Jón Hafliði og Hulda að gifta sig... ég söng fyrir þau eitt lag og tók síðan smá mikið af myndum af þeim... það var æðislega gaman og fórum við Ingimar sátt um nóttina heim á Borgarfjörð... ![]() Zoolander parið mikla... það er núna á Portúgal að sleikja sólina og slappa af... til hamingju mín kæru... Nú á laugardagskveldið var síðan haldið á ball í Valaskjálf en ég hef ekki gert það í a.m.k. 2 ár... þannig að nostalgían var gríðarleg... nú myndirnar af því eru ekki komnar inn í tölvuna þannig að þær bíða betri tíma... |
| Hlynur Sig September 8, 2008 11:34 PM PDT já sæl, þetta var skrítið ball, manstu? (er nebbla ekki vissu að ég muni) Djöfull var annars sumarið fljótt að líða. | ||
| Ingibjörg September 5, 2008 09:34 PM PDT ég labbaði götuna okkar í gær... fór samt ekki of lant því þú veist... mafían hefði getað séð mig ;) | ||
| Dagmar September 1, 2008 05:21 PM PDT Nýtttt bloooogggg!!!! | ||
| Name August 23, 2008 10:12 AM PDT Takk fyrir allt dúllan okkar! Vorum að koma heim úr brúðkaupsferð. Við heimtum að þú kíkir í mat til okkar næst þegar þú kemur austur. | ||
| Kjellinn August 17, 2008 11:29 AM PDT Hellúúúú roomie!! Góð helgi hjá þér, djöfull stendurðu þig vel í blogginu!! ;) Var að skora á palla að blogga meira!! ;) | ||
| Leave a Comment: |