Entry: Spennan magnast... Jul 11, 2008



Já margt er búið að brasa síðan síðast... maðurinn minn er búinn að vera úti í útlöndum í svona mánuð þannig að ég hef fengið að níðast á bílnum hans á meðan sem er mjög gott fyrir mig... tvær ferðir til Borgarfjarðar skaða nú engan bíl.. hehe...

Haldið var upp á afmæli mömmu í lok júní og var það hið skemmtilegasta... Allir skemmtu sér vel og barinn tæmdist þannig að ég og bræður mínir stóðum okkur vel í skipulagningu...

Síðan var ættarmót fyrstu helgina í júlí heima á Borgarfirði og það var snilld.. ég vona að Palli sé búinn að laga netið þegar ég kem heim svo að ég geti nú sýnt ykkur myndir af þessum fögnuðum öllum... á ættarmótinu var farið í göngu með Helga Hlyn, farið á sjó, borðað yfir sig og keppni milli ættliða... sæbergsfólkið stóð sig vel og pabbi minn vann reipitogið.. með 5 öðrum en pabbi minn er samt sterkastur... ;)

Nú þegar Páll Rúnar hefur skilað sér heim er ég hætt að skipa krökkum fyrir í Vinnuskólanum og er komin aftur í að skanna inn myndir og skrá fyrir söfnin hérna í Skagafirði. Það er mjög fínt þegar ég nenni því.. Annars var ég kynnt fyrir leisure suit Larry í gær og þurfti að slíta tölvuna af mér í nótt... sá leikur gengur út á að höstla gellur og ég verð nú bara að segja að ég er nokkuð góð í því... með smá hjálp frá Palla þegar þær eru erfiðar við mig... jebb nóg að gera hjá mér hehe...

Næst á dagskrá er síðan hið alræmda Ósættarmót og síðan vika í firðinum fagra meðan beðið er eftir Bræðsluhelginni... ætla ég að draga Ingibjörgu um mela og móa í þeirri viku og finna t.d. Geirishólatjörn aftur og jafnvel bjóða henni í Stórurð ef veður leyfir... það verður allavega farið til Breiðuvíkur með pabba ef hann nennir í kvöldrúnt...

Well... sit inn myndir á eftir...

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments