Entry: Bræðslan 26.07.08 Jun 5, 2008



Já góðir hálsar.. nú er miðasalan á Bræðsluna 2008 byrjuð... allir eiga að drífa sig á www.midi.is og drífa sig að kaupa sér miða... NÚNA!!!!!

Annars er ágætt að frétta...  ég er komin með íbúð loksins og er farin að safna saman hlutum inn í hana.. ég keypti mér besta rúm í heimi og lá í því í allan morgun.. bara af því að það er best í heimi.. svo á ég núna hillusamstæðu sem er helvíti góð líka... það komast allir DVD diskarnir mínir fyrir í henni þannig að ég er sátt...

ég held áfram að vinna við að skanna en í næstu viku mun ég leysa Pál Rúnar af í mánuð í vinnuskólanum... það verður gott að komast aðeins út og fá að stjórna nokkrum krakkagemlingum... að vísu vildi ég miklu frekar vera komin til útlanda en maður getur víst ekki gert allt sem maður vill... Það styttist einnig í afmæli mömmu, tvö stykki ættarmót og jafnvel Eyjar um versló...

ég semsagt er með agalega útþrá þessa dagana.. ég vil kenna Ingibjörgu frænku um þetta þar sem að hún er búin að fara á alltof marga staði sem að mig langar líka á síðasta mánuð... ég þrái að fara til útlanda og sjá staði sem ég hef ekki séð áður... ég vildi líka stundum að ég gæti farið til danaveldis og sleikt sólina í frederiksberg have með eitt stykki bók og hjólið mitt mér við hlið... já og ingibjörgu líka... shjitt hvað ég get ekki verið á sama stað í langan tíma.. en ég er samt alveg sátt við að vera hérna... það er gott að búa í skagafirði... en ég er farin að plana utanlandsferð í huganum.. helst sem fyrst... hver er með mér??

Well.. hef þetta ekki lengra í dag... myndi líklega bara alveg umturnast í pælingum mínum...

Aldísin.. heima er best... ef maður veit hvar það er....

   4 comments

Ingibjörg Torfadottir
June 16, 2008   05:51 AM PDT
 
já tad er óged töff ad ferdast svona mikid, ógedslega gaman!! og nú á ég enga peninga... :) en hver tarf á teim ad halda
Palli Heinesen
June 12, 2008   09:43 AM PDT
 
aahh, yndislegt á Mallorca í dag ;) hehe
Harpa Rún
June 10, 2008   12:03 PM PDT
 
ég er til í reisu með þér.. ekki spurning!! :)
Palli Heinesen
June 6, 2008   08:45 AM PDT
 
Þú verður bara að koma með mér til útlanda næst þegar ég fer, ja eða þar næst ;)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments