Oct 5, 2008
Goodbye blogdrive...

Já eftir frábæra síðu síðustu 6 ár hef ég flutt mig um set til íslenskra aðila... Takk fyrir allt blogdrive en það er alltaf fínt að prófa eitthvað nýtt...

hérna er nýja síðan, nýjar myndir og nýtt look... gjöriðisvovel...

Posted at 01:44 pm by aldisin
Make a comment  

Aug 13, 2008
Síðustu viku...

...var ég fyrir austan í hinum og þessum erindagjörðum...

ég byrjaði á að æfa og syngja á tónleikum í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði á miðvikudaginn... ásamt mér voru Halldóra Malin mín og Björt Smjört sem komu fram og undirleikarar okkar voru snillingarnir Börkur og Daði.. ég réði þá til æviloka þannig að vonandi sjáið þið þá einhvern tímann...
Nokkrar myndir af þessu...


ég að æfa mig í bláu kirkjunni...


Börkur ýkt hress að bíða eftir matnum sem Óli gerði fyrir okkur... sá matur er einn sá besti sem ég hef fengið...


ég og Daði ógó södd... jei!


Við tutlur fyrir tónleikana.. við erum nú nokkuð fallegar...

Síðan eftir frábæra tónleika og smá ömmu og mömmumat á fimmtudeginum brunuðum við Ingimar (bíllinn hennar mömmu) til Bjargar á Neskaupsstað.... Því á föstudeginum voru krúttin þau Jón Hafliði og Hulda að gifta sig... ég söng fyrir þau eitt lag og tók síðan smá mikið af myndum af þeim... það var æðislega gaman og fórum við Ingimar sátt um nóttina heim á Borgarfjörð...


Zoolander parið mikla... það er núna á Portúgal að sleikja sólina og slappa af... til hamingju mín kæru...

Nú á laugardagskveldið var síðan haldið á ball í Valaskjálf en ég hef ekki gert það í a.m.k. 2 ár... þannig að nostalgían var gríðarleg... nú myndirnar af því eru ekki komnar inn í tölvuna þannig að þær bíða betri tíma...



Posted at 07:39 pm by aldisin
Comments (5)  

Jul 28, 2008
Ættamót, ættarmót og Bræðslan..

Jæja... ég er enn lifandi... þreytt en lifandi...  Bræðslan var dásamleg.... bara að segja ykkur það... myndir koma inn þegar ég nenni að setja þær inn.... Takk allir fyrir helgina... allir sem ég sá í 2 mínútur og lengur... dásamlegt að sjá ykkur öll...

Posted at 09:53 pm by aldisin
Comments (2)  

Jul 11, 2008
Hvíl í friði kæri vinur..


Dingó minn dó í dag í bílslysi... Mér þótti agalega vænt um þennan hund og það var alveg yndislegt að fá alltaf góðar móttökur frá honum þegar ég kom heim í sveitina... Hann var yndi allra krakkana sem komu heim, þó að hann gæti verið smá æstur stundum í fótbolta eða steinakasti... Það verður ekki það sama að fara í heita pottinn þar sem Dingó mun ekki koma með steina í tugatali til að láta okkur kasta...



Dingó að leik með Marinó Bjarna...
 

Vonandi líður þér vel þar sem þú ert litli minn..

Posted at 07:38 pm by aldisin
Comments (4)  

Spennan magnast...

Já margt er búið að brasa síðan síðast... maðurinn minn er búinn að vera úti í útlöndum í svona mánuð þannig að ég hef fengið að níðast á bílnum hans á meðan sem er mjög gott fyrir mig... tvær ferðir til Borgarfjarðar skaða nú engan bíl.. hehe...

Haldið var upp á afmæli mömmu í lok júní og var það hið skemmtilegasta... Allir skemmtu sér vel og barinn tæmdist þannig að ég og bræður mínir stóðum okkur vel í skipulagningu...

Síðan var ættarmót fyrstu helgina í júlí heima á Borgarfirði og það var snilld.. ég vona að Palli sé búinn að laga netið þegar ég kem heim svo að ég geti nú sýnt ykkur myndir af þessum fögnuðum öllum... á ættarmótinu var farið í göngu með Helga Hlyn, farið á sjó, borðað yfir sig og keppni milli ættliða... sæbergsfólkið stóð sig vel og pabbi minn vann reipitogið.. með 5 öðrum en pabbi minn er samt sterkastur... ;)

Nú þegar Páll Rúnar hefur skilað sér heim er ég hætt að skipa krökkum fyrir í Vinnuskólanum og er komin aftur í að skanna inn myndir og skrá fyrir söfnin hérna í Skagafirði. Það er mjög fínt þegar ég nenni því.. Annars var ég kynnt fyrir leisure suit Larry í gær og þurfti að slíta tölvuna af mér í nótt... sá leikur gengur út á að höstla gellur og ég verð nú bara að segja að ég er nokkuð góð í því... með smá hjálp frá Palla þegar þær eru erfiðar við mig... jebb nóg að gera hjá mér hehe...

Næst á dagskrá er síðan hið alræmda Ósættarmót og síðan vika í firðinum fagra meðan beðið er eftir Bræðsluhelginni... ætla ég að draga Ingibjörgu um mela og móa í þeirri viku og finna t.d. Geirishólatjörn aftur og jafnvel bjóða henni í Stórurð ef veður leyfir... það verður allavega farið til Breiðuvíkur með pabba ef hann nennir í kvöldrúnt...

Well... sit inn myndir á eftir...


Posted at 12:44 pm by aldisin
Make a comment  

Jun 15, 2008
einn mánuður..

ég nenni nú ekkert að segja neinar sögur þar sem ekkert merkilegt hefur mikið drifið á dagana hjá mér... þannig að ég læt nokkrar myndir koma af síðasta mánuði eða svo...

Sveitagaurinn minn og hundurinn hans upp í Deildardal í gönguferð...


Félóstaffið í paintball.... you do not mess with us!!!


Þetta stórglæsilega par á eins mánaðar ammli í dag.. vei til hamingju við!! :)

Jebb... er búin að eyða deginum í að þvo þvott og setja gamlar myndir inn á mæspeisið mitt... svona er gaman hjá mér...
ég var samt að enda við að skipuleggja 17. júní hjá mér og svei mér þá ég á eftir að skemmta mér helvíti vel hjá Mánanum og Damsínu á Akureyri.. JEIIII!!! Akureyri hér kem ég!! Síðan skruna ég heim í fjörðinn fagra á fimmtudagskvöldið fyrir stórafmælið hennar mömmu minnar... það verður alveg dandalagaman...


Posted at 09:30 pm by aldisin
Comments (3)  

Jun 5, 2008
Bræðslan 26.07.08

Já góðir hálsar.. nú er miðasalan á Bræðsluna 2008 byrjuð... allir eiga að drífa sig á www.midi.is og drífa sig að kaupa sér miða... NÚNA!!!!!

Annars er ágætt að frétta...  ég er komin með íbúð loksins og er farin að safna saman hlutum inn í hana.. ég keypti mér besta rúm í heimi og lá í því í allan morgun.. bara af því að það er best í heimi.. svo á ég núna hillusamstæðu sem er helvíti góð líka... það komast allir DVD diskarnir mínir fyrir í henni þannig að ég er sátt...

ég held áfram að vinna við að skanna en í næstu viku mun ég leysa Pál Rúnar af í mánuð í vinnuskólanum... það verður gott að komast aðeins út og fá að stjórna nokkrum krakkagemlingum... að vísu vildi ég miklu frekar vera komin til útlanda en maður getur víst ekki gert allt sem maður vill... Það styttist einnig í afmæli mömmu, tvö stykki ættarmót og jafnvel Eyjar um versló...

ég semsagt er með agalega útþrá þessa dagana.. ég vil kenna Ingibjörgu frænku um þetta þar sem að hún er búin að fara á alltof marga staði sem að mig langar líka á síðasta mánuð... ég þrái að fara til útlanda og sjá staði sem ég hef ekki séð áður... ég vildi líka stundum að ég gæti farið til danaveldis og sleikt sólina í frederiksberg have með eitt stykki bók og hjólið mitt mér við hlið... já og ingibjörgu líka... shjitt hvað ég get ekki verið á sama stað í langan tíma.. en ég er samt alveg sátt við að vera hérna... það er gott að búa í skagafirði... en ég er farin að plana utanlandsferð í huganum.. helst sem fyrst... hver er með mér??

Well.. hef þetta ekki lengra í dag... myndi líklega bara alveg umturnast í pælingum mínum...

Aldísin.. heima er best... ef maður veit hvar það er....


Posted at 12:27 pm by aldisin
Comments (4)  

May 26, 2008
Silla ammlisbarn...


Sillan mín á ammli í dag... vei!! Til hamingju með ammlið ástin mín, vonandi áttu stórkostlegan dag.... vei!


ég og Sillan á laugardagskveldinu.... vei...

Svo vildi ég bara sýna ykkur hvað hún Heiðdís Pála er orðin mannaleg...


Já hún er krútt þessi elska... :)


Posted at 11:51 am by aldisin
Comments (3)  

May 19, 2008
Tell me why I don't like mondays...

Punktablogg á þetta held ég bara...

  • Ég er í vinnunni með massavöðvabólgu og heljarinnar hausverk.. það er hressandi... Einhvern veginn vill nuddarinn hérna á króknum ekki svara mér þannig að ég verð að fara að finna mér dóp bráðlega...
  • Ég er að fara að horfa stíft á Eurovision á morgun, fimmtudaginn og laugardaginn... áfram Dima Bilan, kærastinn minn í Rússlandi!!!
  • Þar á milli ætla ég að fara að horfa á bróður minn fagra í Queen Show á Selfossi á miðvikudaginn.. ég hlakka ýkt til að sjá það... jei...
  • ég hef tekið mér skagfirskan/færeyskan mann... sá heitir Páll Rúnar Heinesen Pálsson og er augnayndi mikið... :)
  • Svo á hann líka bíl sem vill keyra mig á Selfoss hahahaha...
  • Tölvan mín er á gjörgæslu hjá Mána á Akureyri... það er ekki gaman... og orsakar líka engar myndir á þessari síðu... 
  • Annars er lífið bara ljúft þessa dagana.. ég þarf allavega að fara að hreyfa mig meira ef ég ætla ekki að fitna yfir mig...

Posted at 09:02 am by aldisin
Comments (2)  

May 7, 2008
...


Langaði bara að deila með ykkur hvað ég á mörg lömb... og falleg... hérna heldur mamma á öllum lömbunum og rollan mín er bara róleg á kantinum á meðan... Helgi frændi tók myndina og er hún stolin af
www.borgarfjordureystri.is Þetta er nú smá fallegt...

Aldísin.. hlakkar doltið að fara í sveitina í sauðburð í nokkra daga...


Posted at 09:40 am by aldisin
Make a comment  

Next Page

   

<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed