Aug 13, 2008
Síðustu viku...

...var ég fyrir austan í hinum og þessum erindagjörðum...

ég byrjaði á að æfa og syngja á tónleikum í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði á miðvikudaginn... ásamt mér voru Halldóra Malin mín og Björt Smjört sem komu fram og undirleikarar okkar voru snillingarnir Börkur og Daði.. ég réði þá til æviloka þannig að vonandi sjáið þið þá einhvern tímann...
Nokkrar myndir af þessu...


ég að æfa mig í bláu kirkjunni...


Börkur ýkt hress að bíða eftir matnum sem Óli gerði fyrir okkur... sá matur er einn sá besti sem ég hef fengið...


ég og Daði ógó södd... jei!


Við tutlur fyrir tónleikana.. við erum nú nokkuð fallegar...

Síðan eftir frábæra tónleika og smá ömmu og mömmumat á fimmtudeginum brunuðum við Ingimar (bíllinn hennar mömmu) til Bjargar á Neskaupsstað.... Því á föstudeginum voru krúttin þau Jón Hafliði og Hulda að gifta sig... ég söng fyrir þau eitt lag og tók síðan smá mikið af myndum af þeim... það var æðislega gaman og fórum við Ingimar sátt um nóttina heim á Borgarfjörð...


Zoolander parið mikla... það er núna á Portúgal að sleikja sólina og slappa af... til hamingju mín kæru...

Nú á laugardagskveldið var síðan haldið á ball í Valaskjálf en ég hef ekki gert það í a.m.k. 2 ár... þannig að nostalgían var gríðarleg... nú myndirnar af því eru ekki komnar inn í tölvuna þannig að þær bíða betri tíma...



Posted at 07:39 pm by aldisin

Hlynur Sig
September 8, 2008   11:34 PM PDT
 
já sæl, þetta var skrítið ball, manstu? (er nebbla ekki vissu að ég muni)
Djöfull var annars sumarið fljótt að líða.
Ingibjörg
September 5, 2008   09:34 PM PDT
 
ég labbaði götuna okkar í gær... fór samt ekki of lant því þú veist... mafían hefði getað séð mig ;)
Dagmar
September 1, 2008   05:21 PM PDT
 
Nýtttt bloooogggg!!!!
Name
August 23, 2008   10:12 AM PDT
 
Takk fyrir allt dúllan okkar! Vorum að koma heim úr brúðkaupsferð. Við heimtum að þú kíkir í mat til okkar næst þegar þú kemur austur.
Kjellinn
August 17, 2008   11:29 AM PDT
 
Hellúúúú roomie!! Góð helgi hjá þér, djöfull stendurðu þig vel í blogginu!! ;) Var að skora á palla að blogga meira!! ;)
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments




Previous Entry Home Next Entry

   

<< August 2008 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02
03 04 05 06 07 08 09
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:




rss feed